Öll samskipti við Bemar hefjast hér.
Fyrst er að kanna hvort hægt sé að leysa erindið á vefsíðum Bemar og ef um bókunarkerfi er að ræða þá er hjálp við flestar aðgerðir, smellt er á ? merkið sem sækir útskýringu á íslensku og ensku í Bemar Wiki gagnagrunn.
Fyrir hefbundnar fyrirspurnir og ósk um aðstoð er sendur vefpóstur á bemar@bemar.is og eins hægt að nýta sér Bemar fyrirspurnarform.
Ef beiðnin er þess eðlis að það þarf að ræða í síma þá er óskað eftir símtali, munið að nefna erindi og símanúmer, ósk um síma samtal er sent til bemar@bemar.is eða með Bemar fyrirspurnaformi.
Síma beiðnum er sinnt alla virka daga frá 10 til 12 og 13 til 15.
Bemar netþjónar og bókunarkerfi eru vöktuð allan sólarhringinn allt árið. Þjónustubeiðnum er svarað ef þörf krefur utan hefðbundins opnunartíma virka daga, en getur tekið lengri tíma.
–
Vinsamlega sendið vefpóst til bemar@bemar.is með lýsingu á hvað þér vantar aðstoð við eða upplýsingar um. Munið að mikið hjálpar efni er að finna í hugbúnaði frá Bemar og eins við innskráningar.
Þegar þú ert í innskráningarglugga í Bemar bókunarkerfi (https://bemarchannel.eu) þá sérð þú UPPLÝSINGAR – INFO hnapp, þar er að finna ítarlega hjálp og mikið að gagnlegu efni ef þér vantar aðstoð við innskráningu.
Vanti aðstoð við að opna næsta tímabil í bókunarkerfi þá sendir þú vefpóst til bemar@bemar.is með grunnverðum og dagsetningum. Við setjum svo tímabilið upp og sendum þér vefpóst þegar það er komið og þú ferð vel yfir allt.
Vanti aðstoð við að rekja eða skoða bókun þá er sendur vefpóstur til bemar@bemar.is með viðkomandi bókunarnúmeri og útskýringum hvað á að rekja eða skoða.
Munið að það er hnappur (spurningarmerki) við flestar aðgerðir í Bemar bókunarkerfi og hægt að lesa um virkni á íslensku og ensku.
Nánast allir viðskiptavinir Bemar eru í Google vefpóst umhverfi og þvi mikill fróðleikur á Google, eins oft gott að leita aðstoðar hjá fjölskyldu eða vin vanti smá aðstoð við uppsetningu og annað. https://bemar.is/postur_bemar/
bemar@bemar.is eða tilbúið fyrirspurnaform

