Bemar

DK bókhaldskerfi

DK hugbúnaður

Flytjum sjálfvirkt bókanir (reikninga) frá flestum gististaða bókunarkerfum yfir í DK bókhaldskerfi, þú velur hvaða dag þú vilt stofna reikning í DK en hefbundið er að það gerist á komudegi. Þú velur hvort bókanir td. frá Booking Airbnb og Expedia verði að reikning í DK á komudegi eða allar bókanir.

Í hádegi á komudegi gestsins bíður fullfærður reikningur í DK bókhaldi með öllum upplýsingum, allt ferlið sjálfvirkt.

Kennitölur ferðaskrifstofa og tilvísunarnúmer bókunar koma sjálfvirkt á DK reikning, allt ferlið sjálfvirkt.

Uppsetning er aðlöguð sér að hverjum notanda og getur bókun (herbergi) raðast í herbergjaflokka eða öll herbergi geta verið sér í DK (hvert herbergja númer með sér vörunúmer). Kennitölur og tilvísanir koma fram á DK reikning. Hefbundið stofnar kerfið nótu fyrir hvert herbergi (bókun) á komudegi en stærri gististaðir geta fengið sér hópakerfi sem safnar hópabókunum saman á einn reikning.

Innifalið í mánaðargjaldi er dagleg samkeyrsla á milli kerfanna ásamt hefbundnu eftirliti (öryggisafritun af færslum) og smærri breytingar og lagfæringar.

Bemar notar API REST/JSON (dkPlus API) tengingu, þessi tenging er mun hentugri en eldri SOAP lausn og kostar mun minna.

Sjá nánar á dk.is

Til að fá þitt bókunarkerfi samtengt DK bókhaldskerfi vinsamlega hafðu samband, bemar@bemar.is