Bemar

DK bókhaldskerfi

DK hugbúnaður

Flytjum sjálfvirkt bókanir (reikninga) frá flestum gististaða bókunarkerfum yfir í DK bókhaldskerfi, þú velur hvaða dag þú vilt stofna reikning í DK en hefbundið er að það gerist á komudegi. Þú velur hvort bókanir td. frá Booking Airbnb og Expedia verði að reikning í DK á komudegi eða allar bókanir.

Í hádegi á komudegi gestsins bíður fullfærður reikningur í DK bókhaldi með öllum upplýsingum, allt ferlið sjálfvirkt.

Kennitölur ferðaskrifstofa og tilvísunarnúmer bókunar koma sjálfvirkt á DK reikning, allt ferlið sjálfvirkt.

Uppsetning er aðlöguð sér að hverjum notanda og getur bókun (herbergi) raðast í herbergjaflokka eða öll herbergi geta verið sér í DK (hvert herbergja númer með sér vörunúmer). Kennitölur og tilvísanir koma fram á DK reikning. Hugbúnaðurinn stofnar nótu fyrir hvert herbergi (bókun) á komudegi eða þeim degi sem hentar þínum rekstri.

Reikningar geta færst sem greiddir eða ógreiddir og eins hægt að láta greiðslustöðu fylgja bókunarkerfi og merkjast þá greiddir séu þeir með Paid stöðu, eins hægt að velja að nota greiðslustöðu á núlli í bókunarkerfi til að reikningar merkist greiddir.

Fyrir stærri gististaði er boðin viðbót sem sameinar hópa td. frá ferðaskrifstofum og verður bara til einn reikningur í DK í staðin fyrir hvert herbergi. ↓

Hefbundin reikningur hefur vörulínur á sama hátt og viðkomandi herbergjabókun ásamt því sem við á eins og nafni, kennitölu, og tilvísun.

Hópa samantekta reikningur sýnir eitt heildar verð ásamt sér vörulínu fyrir gistináttaskatt sem er undanþegin virðisauka. Nánari útskýringar innihalda fjölda herbergja í hverjum flokk, herbergjanúmer, master gest og hans herbergi, komu og brottfara dag ásamt því sem við á eins og nafni, kennitölu, og tilvísun.

ATH Hópabókanir geta vistast sem drög ef hentar að vinna nánar með hóp.

Innifalið í mánaðargjaldi er dagleg samkeyrsla á milli kerfanna ásamt hefbundnu eftirliti (öryggisafritun af færslum) og smærri breytingar og lagfæringar.

Bemar notar API REST/JSON (dkPlus API) tengingu.

Sjá nánar á dk.is

Til að fá þitt bókunarkerfi samtengt DK bókhaldskerfi vinsamlega hafðu samband, bemar@bemar.is